Press release -
Michel van den Bogaard nýr fjármálastjóri Signicat
Signicat, 13. september 2023 - Evrópska stafræna auðkennisfyrirtækið Signicat hefur ráðið Michel van den Bogaard sem fjármálastjóra. Van der Bogaard, sem hefur aðsetur á skrifstofu Signicat í Rotterdam, mun leiða rúmlega 35 manna teymi um alla Evrópu og mun heyra beint undir forstjóra Asger Hattel.
„Það gleður mig að kynna Michel van den Bogaard sem nýjan fjármálastjóra okkar frá og með 1. september. Fjölbreyttur bakgrunnur og sérþekking Michel í fjármálastjórnun, ásamt reynslu hans af því að vinna með eigendum einkahlutafélaga, gerir hann að fullkomnum kost til að taka við sem fjármálastjóri. Þekking hans á alþjóðavettvangi, reynsla með leiðandi vörumerkjum og djúp þekking á SaaS, gerir hann að miklum feng fyrir okkur“ segir Asger Hattel, forstjóri Signicat.
Með meira en 25 ára reynslu af fjármálastörfum hefur Michel starfað með alþjóðlegum vörumerkjum eins og Shell og Heineken. Hann hefur einnig víðtæka reynslu í einkahlutafélögum.
Michel starfaði síðast sem fjármálastjóri SENTIA, eitt af leiðandi fyrirtækjum í N-Evrópu sem sérhæfir sig í skýjaþjónustum, sem Accenture keypti nýlega.
"Ég er spenntur að ganga til liðs við Signicat. Ég er hrifinn af yfirgripsmiklu framboði þess á stafrænum traustþjónustum til fjölbreyttra fyrirtækja um alla Evrópu. Markmið mitt er að styðja fyrirtækið á meðan það heldur áfram stórkostlegum vexti" segir van den Bogaard.
Michel van den Bogaard gengur til liðs við Signicat á tímum breytinga: Eftir nýlegar yfirtökur á evrópskum fyrirtækjum eins og Dokobit (Litháen), Sphonic (Bretlandi) og Electronic IDentification (Spáni), hefur Signicat styrkt hlutverk sitt sem leiðandi afl í Evrópu á sviði stafrænna auðkennisþjónusta.
Um Signicat
Signicat er evrópskur leiðtogi í rafrænum auðkennislausnum með afrekaskrá sem nær til þróuðustu markaði heims fyrir stafræn auðkenni. Stafrænn auðkennisvettvangur fyrirtækisins er sá umfangsmesti í heimi, þar sem allt er aðgengilegt í gegnum einn aðila. Vettvangurinn styður öll skref þjónustuupplifunar, allt frá nýskráningu og innskráningu til samþykkis, til að gera viðskiptasamninga sem standast í tímans rás. Signicat var stofnað árið 2006 og keypt af Nordic Capital árið 2019. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Þrándheimi í Noregi.
Fyrir frekari upplýsingar um Signicat getur þú skoðað heimasíðu fyrirtækisins á www.signicat.com